Mér krossbrá þegar ég sá þessa frétt á vísi.is
Eitthvað fólk var með partý og skjóta upp flugeldum seint um kvöld þegar 22ára gömul móðir var að reyna að svæfa 1ára gamalt barn sitt.

“Þegar lögreglan kom var ég eitthvað að rífast við fólkið. Í fyrstu var ég fegin því ég hafði hringt í hana.
Lögreglumennirnir gengu hins vegar beint til mín, handtóku mig og færðu mig inn í lögreglubíl. Ég var járnuð á höndum og fótum og fæturnir á mér bundnir. Ég reyndi að útskýra málið og sagðist vera með ungbarn heima en mennirnir hlustuðu ekkert á mig heldur sneru mig niður og settu hnéð í bakið á mér en ég er mjög lítil manneskja og það þarf ekki mikið til að halda mér niðri.”

Hvað er að gerast?
Hvað fá þessir blessuðu verðir laganna eiginlega út úr því að fara svona með okkur löghlýðna skattborgara?
“True words are never spoken”