1 Ekki spilla mér, ég veit vel að ég á ekki að fá allt sem ég bið um, ég er bara að prófa þig.

2 Ekki hika við að vera ákveðin við mig, ég kýs það frekar-það veitir mér öryggi.

3 Ekki leyfa mér að temja mér slæma ávana, ég verð að treysta á þig, að þú uppgötvir þá strax í byrjun.

4 Ekki láta mig finnast ég vera smærri en ég er, þá hegða ég mér kjánalega til að sýna hvað ég er stór.

5 Ekki leiðrétta mig í áheyrn annarra, ég hlýði miklu frekar ef þú talar við mig í einrúmi.

6 Ekki láta mig líta á glappaskot mín sem þau væru glæpur, það myndi rugla mig svo mikið í verðmætamati mínu.

7 Ekki hlífa mér við afleiðingunum, ég þarf stundum að læra af reynslunni þó að það sé ekki alltaf sársaukalaust.

8 Ekki æsa þig upp þó ég segist hata þig, það ert ekki þú sem ég hata, heldur það vald sem þú hefur til að hindra mig.

9 Ekki gera of mikið úr óþekktinni minni, ég nota hana stundum bara til að ná athygli þinni.

10 Ekki þrasa, þá læt ég bara sem ég heyri það ekki.

11 Ekki gleyma því að ég get ekki tjáð mig eins og ég vildi, þess vegna er ég ekki alltaf sjálfum mér samkvæmur.

12 Ekki gefa mér loforð sem þú getur ekki haldið, ég yrði svo sár.

13 Ekki treysta um of á heiðarleika minn, það er auðvelt að hræða mig svo að ég segi ósatt.

14 Ekki vera sjálfri þér ósamkvæm, það ruglar mig og ég þori ekki að treysta þér.

15 Ekki gera lítið úr ótta mínum, hann er raunverulegur, en þú getur hjálpað mér að yfirvinna hann ef þú reynir að skilja hann.

16 Ekki daufheyrast þegar ég spyr spurninga, þá hætti ég að spyrja þig og leita til annara eftir svörum.

17 Ekki gefa í skyn að þú sért fullkomin og gallalaus. Það verður svo mikið áfall fyrir mig þegar ég kemst að því að þú ert hvorugt.

18 Ekki líta á það sem niðurlægingu að biðja mig afsökunar. Mér hitnar um hjartað ef þú biðst fyrirgefningar í einlægni, og mér þykir enn vænna um þig en áður.

19 Ekki gleyma hversu hratt ég vex og þroskast. Það hlýtur að vera erfitt að fylgja mér eftir, en reyndu samt.

20 Ekki gleyma hversu gaman mér þykir að finna uppá einhverju nýju og prufa mig áfram. Ég myndi ekkert þroskast ef ég fengi það ekki, svo reyndu að umbera mig.

21 Ekki gleyma að án mikillar ástar og skilnings þrífst ég ekki, en það viestu nú þegar er það ekki.

Ég fann þetta í möppu sem ég var að blaða í gegnum.. hvílík snilld =) Njótið vel