Vildir þú ekki stundum óska að þú gætir farið
aftur í tímann þegar …..

Ákvarðanir voru teknar með því að nota
“Úllen dúllen doff” eða “Ugla sat á kvisti”?

Peningamál voru afgreidd af þeim sem var
bankastjórinn í Matador.

Hægt var að gleyma sér tímunum saman við að
blása á biðukollur og eltast við fiðrildi.

Það þótti ekkert athugavert við það að eiga
tvo til þrjá “bestu” vini.

Það að vera “gamall” átti við hvern þann sem
kominn var yfir tvítugt.

Pabba tókst að láta þumalinn á sér hverfa og
birtast til skiptis.

Brennó þótti merkilegra en nokkur íþróttagrein.
Þeir sem voru “vopnaður” í skólanum voru þeir
sem voru með teygjubyssur.

Engin(n) var fallegri en mamma.

Pabbi var sterkasti maður í heimi.

Sár gréru með einum kossi.

Fyrsti vetrarsnjórinn olli óendanlegri gleði.

Fimmtudagskvöldin voru “öðruvísi” af því að það
var ekkert sjónvarp og fólk eyddi meiri tíma í að
tala saman.

Þú fékkst dót fyrir að vera dugleg(ur) hjá
tannlækninum.

Það vandræðalegasta sem gat komið fyrir þig var að
vera valinn síðastur í brennóliðið.

Eldri systkini þín voru þínir gátu kvalið þig enda-
laust, en voru jafnframt fyrst til að vernda þig.

ABBA myndir voru verðmeiri en nokkur hlutabréf.

Það að snúa sér hring eftir hring eftir hring var
nóg til þess að fá klukkutíma hláturkast.

Loforð um að fá ís var nóg til þess að þú kláraðir
matinn þinn.

Ef þú kannast við meirihlutann af þessu, þá hefurðu LIFAÐ!!

Lifiði!!!
Gromit