Ég sit enn hér og reyni að telja aftur og aftur upp að 10 til að róa mig þegar ég hugsa um tengdó, þessa frægu ömmu sonar míns.
Ég skil ekki hvernig þessi blessuð kona getur fundið upp á öllum þessu ömurlegu hlutum til að gera og segja.
Við vorum í heimsókn þar eins og oft áður um síðustu helgi. Hún var eitthvað að frekjast við tengdapabba og maðurinn minn sagði henni að leifa honum að gera sitt og bíða á meðan. Frúin varð alveg brjáluð og ekki löngu seinna þegar maðurinn minn var að gera við tölvuna fyrir tengdapabba þá kom kerlingar skessan til hans og sagði að ef hann þyrfti að vera að skipta sér af því sem hún gerði, eða ef hann væri eitthvað að rífast þá þyrfti hann ekkert að koma í heimsókn til þeirra. Hann var eðli málsins samkvæmt mjög feginn og sagði henni að hann kæmi þá ekkert en hún þyrfti að gera sér grein fyrir að ef hann kæmi ekki þá kæmi barnið ekki heldur. Hvað haldið þið að kerlingar álftin hafi sagt? Hún sagði “ það er bara ennþá betra”. Einmitt þegar hún var að koma frá því að segja þetta við hann, kom hún inn þar sem ég var að klæða strákinn og sagði smjaðurslega “ertu að fara elskan?, amma og afi hefðu viljað að þú værir hér meðan mamma fer í heimsókn og að hún sækti þig á eftir”. Ég vissi ekki af þessu sem hún sagði við manninn minn sem betur fer fyrir hana. Mér er ekki nokkur leið að skilja hvernig fólk getur látið svona.
Það var líka annað sem hún var að ónotast með. Þau eiga videomyndavél og hafa tekið töluvert af myndum af stráknum og um daginn saðgi hún við okkur að við mættum ekki fá að copera af henni meira af því að það væri ekki gaman að allir ættu það sama og við gætum tekið upp fyrir okkur sjálf. En málið er að við ÁTTUM ENGA VIDEOMYNDAVEL. Við fórum í gær og keyptum okkur eina fyrir jólin til að geta tekið upp á fyrstu jólunum hans. Þau hefðu ekki fengið leifi til að taka myndir af honum fyrst við máttum ekki copera svo það hefðu engar orðið til. ÖMURLEGA AMMAN !!!

kveðja
Bomba