Ég er hérna alveg að fríka út. Ég veit ekki hvort þið trúið því, en ég fékk eina svona tengdamömmu eins og gert er grín með að karlmenn fái alltaf. Hún er að gera mig brjálaða og ég ætla að senda hérna inn smá sýnishorn af því hvernig hún er og trúið mér ef einhver les þetta og ég fæ góð viðbrögð þá á ég mikið meira af svona sögum um hana og hvernig hún lætur gagnvart barninu okkar.

Við eigum lítinn son sem er 4 mánaða. Hann er algert óskabarn enda okkar eina barn og tengdamömmu eina barnabarn. Hún er alltaf að tala um hvað hann sé yndislegur og fallegur og bla bla allt það. Það er eins og þessi kona lifi fyrir að reyna að finna eitthvað sem er ekki í lagi og gera okkur lífið leitt. Ég veit að hún er góð kona og vill okkkur ekki íllt en ráðríkin og afskiptasemin er að drepa hana.

Hún og þar að leiðandi maðurinn minn eru útlendingar en hafa verði hér svo lengi að maðurinn minn er alinn upp hér næstum alla ævi.
Þegar við vorum í heimsókn hjá henni einu sinni, þá hefur strákurinn ekki verði nema kanski 4-6 vikna þá sagði hún eitthvað við manninn minn sem ég skildi ekki. Hann varð eitthvað fúll og kom til mín og sagði við mig að mamma sín væri rugluð. Ég spurði hvað væri að og hann sagði að hún hefði verði að tala um að sonur okkar væri að verða rauðhærður og henni líkaði það illa. Hún sat á sófanum í stofunni með litla barnið liggjandi á sófanum við hliðina á sér þegar ég kom inn í stofu. Ég var alveg öskureið og labbaði inn í stofu og sagði við hana “ef hann er að verða rauðhærður viltu þá láta raka af honum allt hárið af því að þér líkar ekki liturinn?” og hvað halið þið að hún hafi sagt????
“Hárið á honum er rautt, mér finnst fólk með rautt hár svo ógeðslega ljótt, sérstaklega strákar” !!!!

Hugsið ykkur að segja svona um börn eða fólk yfirleitt. Jafnvel þó henni hafi fundist þetta þá gat hún samt bara þagað og sagt ekki neitt. Þetta er eitt af því sem henni verður innst inni aldrei fyrirgefið. Þar að auki þá er strákurinn ekki rauðhærður en einstaka sinnum eftir því hvernig ljósið skýn á hárið á honum þá kemur svona gullinn blær á það. Það er aðeins rauður blær í minni ætt en enginn rauðhærður. Og það allra besta er að kerlingin er með
litað hár RAUTT!!!!! Ljósrautt.

Vonandi eigið þið ekki svona ömmur handa börnunum ykkar.