Ég fékk Jólakort!! Jæja ég var að fá jólakort frá honum Henry mínum! :)
Eins og kanski sumir hér vita þá er ég að styrkja lítin 4 ára strák frá úganda. Þetta er fyrsta árið mitt og þetta er í fyrsta skiftið sem ég fæ eitthvað frá honum.
Þetta var jólakort með mynd af tré á sem hann var búin að lita í sjálfur og skrifa “Happy Christmas” á. Það er ekkert smá æðislegt að hafa fengið þetta og mér líður sveimér þá bara eins og stoltri móður! *tár*
Varð bara að segja ykkur þetta :) Og hvet ykkur ennfremur til þess að athuga málið hvort það sé ekki eitthvað sem þið getið gert fyrir börnin þarna úti.

Nánari upplýsingar eru á www.abc.is