Ég var inni á visi.is og rakst þar á frétt frá Danmörku. Þrjú ung
börn dóu í bruna en faðir þeirra segist hafa kveikt í húsinu eftir
að hafa myrt börnin sín. Hvað er að??? Það eru endalaust,
finnst mér, að koma fréttir héðan og þaðan í heiminum af
foreldrum sem myrða börnin sín á grimmilega hátt.

Hvað er það sem fær fólk til að gera svona lagað?
Hversvegna blossa upp svona faraldrar eins og í
Bandaríkjunum fyrir skömmu? Er fólk almennt gengið af
göflunum?

Ég verð svo ótrúlega reið þegar ég sé svona fréttir að ég
hugsa út í það hvort ekki væri best að taka upp vönun til að
koma í veg fyrir svona hluti.

Hversvegna er sumt fólk yfirhöfuð að eiga börn?

Já heimur versnandi fer.