Það er orðið svo hrikalega dimmt úti núna á morgnana og líka bara fyrir kvöldmatarleiti.
Ég vildi bara minna alla á að tékka á því hvort að barnið/börnin séu ekki vel merkt á bak og fyrir!
Endurskinsmerkin eru til í mörgum formum, bæði límd,saumuð,hangandi,stórt band ská yfir búkinn ofl.
Pössum litlu krílin okkar í skammdeginu. :)
Með því að merkja þau vel með endurskinsmerkjum þá erum við að fyrirbyggja það að ökumenn og fleiri sjái þau ekki.
Slysin gera ekki boð á undan sér.

kveðja
honeybun
kveðja