Er svona erfitt að hafa börnin sín örugg!!!! Mikið rosalega fer í taugarnar á mér svona fólk sem getur ekki hugsað!
Ég var á leiðinni heim úr vinnunni í mat núna áðan og ég keyri Á miklubrautinni! framúr bíl þar sem mamman er að keyra og svona ca 4 ára dóttir hennar stendur á milli framsætana og er að spjalla bara! Ekki sá ég mömmuna kippa sér neitt við það, hélt bara áfram að keyra eins og ekkert væri að..
Ég bara spyr, er ekki allt í lagi með þessa konu!
Aldrei í mínu lífi myndi ég taka þetta í mál! Eins og það eru nú búið að vera mikið af dauðsföllum í umferðinni núna undanfarið! Kennir það henni ekki neitt! Djöfull varð ég reið.
Ég meina það er ekki eins og það sé ekki til öryggisbúnaður fyrir 4 ára krakka! Það eru bæði til stólar og sessur og sérbyggð belti!