'Eg lenti í hræðilegri reynslu í gær!!!
andartak hélt ‘Eg að Nói væri dáinn.
’Eg hafði sett hann út að sofa um 11 og tjékkaði alltaf reglulega á honum, ég fékk systir mína í heimsókn og spjallaði við hana heyrði alltaf í tækinu andardráttinn hans og tjékkaði náttúrlega líka reglulega um 1 þá var systir mína að fara og þá voru svona 5-10 mín´. síðan ég hafði tjékkað síðast, ég bað hana um að gá að honum , allt í einu rífur hún plastið af og allt, ég hljóp út á sokkunum þá hafði svefnpokinn farið yfir munninn og nefið og hann var byrjaður að blána! sem betur fer fékk hann réttan lit um leið og pokan var tekin , ég fatta ekki enn hvernig pokinn gat farið svona, hann hreyfist ekki auðveldlega og ég hafði fest hann niður!
(ég lét tengdó sauma hann niður, í gær eftir þetta )
‘Eg fékk svo mikið sjokk
hjúkkan sem skoðar hann hringdi stuttu eftir og ég fór með hann upp á heilsó.
Hún tönglaðist á því að þetta væri ekki mér að kenna, auðvitað var það mér að kenna? ’eg hefði átt að festa pokan betur
Hann brosti og trallaði fyrir lækninn og hjúkkuna.
Það er allt í lagi með hann guð sé lof
Honum er rosalega ílla við að láta koma við eyrun sín (ekki með eyrnabólgu) og þegar læknirinn skoðaði þau, reyndi hann að pissa á hann :)
við vorum í rusli í allan gærdag + það að ég náði ekki á pabba hans fyrr enn skoðuninn var að verða búin
Hvað ef við hefðum spjallað aðeins lengur!
vonandi lend ég aldrei aftur í þessari aðstöðu.
Sonur minn á verndarengil