Ég er með svo litlar hendur. Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir. Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir.
Ekki slá á hendurnar þegar ég snerti eitthvar fallegt. Ég skil það ekki.
Horfðu á mig þegar ég tala við þig. Þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég hef viðkvæmar tilfinningar. Ekki vera alltaf að skamma mig, leyfðu mér að gera mistök, án þess að mér finnist ég vera vitlaus.
Ekki búast við að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna.
Mundu að ég er barn, ekki lítil fullorðin vera. Stundum skil ég ekki það sem þú segir.
Ég elska þig mikið. Elskaðu mig fyrir að vera ég. Ekki fyrir eitthvað sem ég get.