Ég var næstum búin að aka á barn í gærkvöldi, það var stelpa sem var í dökkum fötum að hlaupa yfir götu, ekki á gangbraut nota bene, sem betur fer var ég ekki nema á ca 40 km. hraða þannig að ég gat bremsað. En mér brá svo hrikalega, ég sá stelpuna ekki fyrr en það voru nokkrir metrar í hana.
Hún hefur eflaust séð mig, og haldið að þetta væri allt í lagi, ég myndi sjá hana.
En það er einmitt þetta sem þarf að fræða börn um, afhverju það þarf að nota endurskinsmerki.
Ég er viss um að það er ekki gott að hafa það á samviskunni að aka á barn, og það getur komið fyrir alla, sérstaklega í aðstæðum eins og þessum sem ég lýsti að ofan.
Því finnst mér að við ættum að setja góða fyrirmynd og ganga sjálf með endurskinsmerki, og láta merki á föt barna okkar.
Merkin er hægt að fá í allskyns útgáfum, og ég held að það sé hægt að fá eitthvað fyrir alla, sama hvað þau eru miklir töffarar :)
———————————————–