Jæja góðir foreldrar, hvernig væri nú að bretta fram ermarnar og gefa sér smá tíma með börnunum sínum í trölladeigsföndur. Ég man hvað mér fannst þetta rosalega gaman þegar ég var lítil. Þetta var allt annað en að móta eitthvað úr leir því trölladeigið bjó maður til SJÁLFUR (með smá aðstoð frá mömmu) og gat alltaf búið til meira ef vantaði. Svo bjó maður til þessi fínu listaverk og fígúrur og málaði bara með vatnslitum eða tússlitum eða einhverju sem tolldi svona þokkalega á þessu :)

Það er fljótlegt að gera trölladeig, maður notar einn hluta af salti á móti tveimur af hveiti og bætir svo e.t.v. smá matarolíu út í. Svo hnoðar maður þetta með köldu vatni þar til deigið fær þann þéttleika sem er hentugastur til að móta úr. Það er líka hægt að blanda matarlit út í, mamma setti oft rauðan og þá var deigið voða bleikt og flott (ætli það hafi ekki bara verið til rauður og grænn matarlitur þá). Síðan er bara að föndra af vild og svo eru listaverkin þurrkuð í ofni við lágan hita (ca 125°-150°C). Þurrkunin tekur lengstan tímann og fer svolítið eftir hve þykk listaverkin eru. Sumir láta þetta þurrkast í ofninum yfir heila nótt. Þegar listaverkin eru orðin þurr og hörð eru þau tilbúin og þá er hægt að skreyta og mála.

Svo ég mæli með að þið takið krakkana með ykkur í eldhúsið og búið til trölladeig :)
Kveðja,