Þakka þér,
Himnaguð, fyrir að gefa mér þetta litla yndislega barn.
Þú getur ekki ýmindað þér, þvílíkur geisli hann er í okkar lífi.
Ég hefði ekki trúað hversu ofboðslega mikið
ég ætti eftir að elska þetta barn.
Þvílíkt kraftaverk sem hann er.

Ég sit hérna og ætla að skrifa nokkur orð.
Bróðir minn, missti dóttur sína.
Ofboðslega fallega stúlku.
Hún fékk ekki að vera hér á jarðríki :´(
Ég get ekki ýmindað mér sársaukann, sem hann hefur mátt upplifa.
Að missa barnið sitt er það hræðilegasta sem að fólk getur lent í.

En hann er sterkur og veit að elsku litla dóttir hans er í faðmi föður okkar.

Ég veit ekki hvað ég er að fara með þessum skrifum.

Ég sé bara hversu blessuð ég er, að eiga yndislegann og heilbrigðann son.
Daumabarnið, því að hann er það.

En ef ég fengi eina ósk uppfyllta, væri hún sú að
bróðir minn fái það sama og ég.

Heilbrigt lítið barn,
Óskabarnið sitt.