Nú ætla ég að tala aðeins um barnamisnotkun og nærtækasta dæmið er það sem var í gangi í skólanum mínum þegar ég var lítil.
Þegar ég var 7 ára þá var ég í venjulegum barnaskóla allt ósköp venjulegt nema við höfðum ógeðslegan kall að kenna myndment hann var búin að kenna þarna í nokkur ár og á hverju ári fór hópur af litlum stelpum inn til skólastjórans og kvörtuðu yfir því að kennarinn káfaði á þeim.
skólastjórinn trúði aldrei litlu stelpunum því kallinn átti sjálfur börn og var búin að kenna þarna í nokkur ár.Sem betur fer stóðum við bekkurinn saman og engin var skilin ein/nn eftir með þessum kennara
Þessi kennari hætti þegar ég var 9 eða 10 því ein mamman trúði dóttur sinni og kærði hann fyrir nauðgunartilraun(sem var reyndin með þær stelpur sem voru “þroskaðar”)Þegar ein kærði þá kærðu margar.. Kallinn fékk 3 mánaða dóm sem hann þurfti ekki að sitja af sér…
Þetta er ógeðslegt og sýnir hvað kerfið er gallað
Treystið börnunum ykkar!