Ég bara skil ekki hvað fólk er að pæla þegar að þau eru að kaupa þessar Bratz dúkkur handa börnunum sínum, þessar dúkkur líta út eins og hórur, í pilsum sem eru svo stutt að þetta gæti verið nærbuxur, Magabolir, há stigvel og málaðar eins og hórur….

Sjáiði ekki hvað þetta er að gera börnunum ykkar?
Ég fér út í búð og ég sé 2 stelpur sem eru ábyggilega ekki deginum eldri en 11 ára sem eru augnskugga, varaliti og þykkt lag af meiki á andlitinu á sér, síðan eru þær í stuttum pilsum og magabolum.
Þetta var ekki svona áður fyrr!

Ég fór um daginn að djamma með vinkonum mínum og sá þá 3 stelpur, ekki eldri en 13 ára drekkandi og í glennufötum. Hvað er að ské? og hvar eru foreldranir spyr ég bara?
Eru foreldrar ekkert að fatta þegar að börnin þeirra eru úti í bænum um miðjar nætur?

Svo getur þetta líka leitt til einelltis, ef að þau lýta eða klæða sig ekki eftir þessu þá er gert grín af þeim.
Þau mega ekki hafa neitt utaná sér þau eru þau kölluð feit.

Mér finst þetta bara hneikslandi og það ætti að banna þessar dúkkur, ég veit að það eru ekki allir samála mér en þetta er mín skoðun.

Hvað finst ykkur??