ég er ekki viss hvar ég get sett þetta en ætla að prófa hérna.

Þannig er það að ég á alveg æðislega foreldra og allt það. Um ævina hafa þau auðvitað rifist stundum en nú er þannig komið fyrir að þau eru farin að tala voða lítið saman og í þau fáu skipti sem þau tala saman eru þau bara að rífast.
Pabbi er þannig að hann er mikið í tölvu og er að spila Bridge. Hann er að tala við einhverja konu sem býr í öðru landi og þau eru öll kvöld að tala saman. Ég hef oft talað við hana og hún er voða næs :)
Ef hann er ekki í tölvunni þá er hann að veiða eða á skytteríi eða hnýta flugur. Þar af leiðandi hefur hann lítinn tíma til þess að vera með fjölskyldunni og við erum alveg hætt að vera með fjölskyldustundir saman.
Mömmu finnst þetta að sjálfsögðu mjög leiðinlegt og vill að hann verði einhverntíman með sér. En mamma er í skóla og þarf því að læra öll kvöld og pabbi vill ekki trufla hana. En mamma lætur hann aldrei vita þegar að hún er að læra svo að þetta er þeim báðum að kenna að þau eyða engum tíma saman.
Nú eru þau heilu og hálfu tímana að rifast um þetta og margt annað. Þá loka ég mig inni í herbergi því að mér finnst ekkert verra en að heyra þau rífast :(
En svo varð þetta enn verra um daginn þegar að ég var í bíl með pabba og hann fór að baktala mömmu! Ég hef aldrei vitað neitt annað eins! Hann sagði að mamma væri að láta sig koma út sem vondi kallinn og var að segja að hún væri fýlupúki og annað slíkt sem ég hafði engan áhuga á að heyra því að jú…þetta er mamma mín og mér þykir vænt um hana alveg eins og pabba minn. En svo núna í kvöld (þegar að ég skrifa þessa grein) þá fór pabbi á skytterí og ég var eitthvað að tala við mömmu að hún fer að baktala pabba! Ég bara átti ekki til aukatekis orð. Hún fór að segja að hún væri góða konan en pabbi vondi kallinn. Svo fór hún eitthvað að segja hvað hann væri ekki að leyfa mér að gera en hún væri að leyfa mér. Mér leið svo illa. Ég er bara farin að halda að þau séu hætt að elska hvort annað jafn mikið! Eða er þetta bara tímabundið? Hafiði lent í svona? Mun þetta kannski enda með skilnaði? :S :( ég er að farast mér líður svo illa. Hvað er til ráða?
Ég þarf hjálp!
Aqulera