Þegar börnin ykkar eru óstýrlát getið þið þó huggað
 ykkur við þær hugsanir
 að almætti Guðs náði ekki til barna Guðs.
 Þegar Guð var búinn að skapa himinn og jörð, skapaði
 hann Adam og Evu.
 Og það fyrsta sem hann sagði við þau var: “MÁ EKKI”.
 “Má ekki hvað?” svaraði Adam.
 “Má ekki borða hinn forboðna ávöxt” sagði Guð.
 “Forboðna ávöxt? Eigum við forboðinn ávöxt? Hei,  Eva!.. við eigum
  forboðinn ávöxt!!”
 “Nöö-hau”
 “Júú-hau”
 “Ekki borða þann ávöxt” sagði Guð.
 “Akkgurru?”
 “Af því ég er pabbi ykkar og segi það!” sagði Guð og  velti fyrir sér
af
  hverju hann hafði ekki bara hætt þegar hann var búinn að skapa fílana.
 Nokkrum mínútum seinna sá Guð börnin vera að gæða
  sér á epli og varð reiður.
 “Sagði ég ykkur ekki að það væri bannað að borða
  þennan ávöxt?” spurði  fyrsta foreldrið.
 “Júdd” svaraði Adam.
 “Af hverju gerðuð þið það þá?”
 “Veiddiggi” svaraði Eva.
 “Hún byrjaði!” sagði Adam.
 “Nöö-hau”
 “Júúhú”
 “Gerðir það víst!”
 “Gerði það ekki!”
 “VÍÍÍÍSSSST!!!!”
 Þegar Guð var alveg búinn að fá nóg af þessum tveim
 villingum ákvað hann að refsa þeim með því að láta þau sjálf eignast
sín
 eigin börn. Og þannig  hefur þetta gengið, svo þú getur huggað þig við
að
 fyrst Guð gat ekki alið  sín börn, hvers vegna heldur þú að það sé
 eitthvað
 auðvelt fyrir ÞIG?
                
              
              
              
               
                  
                  
                  
                 
        






