Ég var ekki viss hvort ég ætti að setja þessa grein á brandara eða á börnin okkar, en þetta á örugglega betur heima hér….


Þegar börnin ykkar eru óstýrlát
getið þið þó huggað ykkur við þær
hugsanir að almætti Guðs náði ekki
til barna Guðs.


Þegar Guð var búinn að skapa himinn
og jörð, skapaði hann Adam og
Evu. Og það fyrsta sem hann sagði
við þau var : “MÁ EKKI”.
“Má ekki hvað?” svaraði Adam.

“Má ekki borða hinn forboðna ávöxt”
sagði Guð.
“Forboðna ávöxt? Eigum við forboðinn
ávöxt? Hei, Eva!..við eigum
forboðinn ávöxt!!”
“Nöö-hau”
“Júú-hau”
“Ekki borða þann ávöxt” sagði Guð.
“Akkgurru?”
“Af því ég er pabbi ykkar og segi
það!” sagði Guð og velti fyrir sér
afhverju hann hafði ekki bara hætt
þegar hann var búinn að skapa
fílana.
Nokkrum mínútum seinna sá Guð börnin
vera að gæða sér á epli og varð
reiður.
“Sagði ég ykkur ekki að það væri
bannað að borða þennan ávöxt?”
spurði fyrsta foreldrið.
“Júdd” svaraði Adam.
“Af hverju gerðuð þið það þá?”
“Veiddiggi” svaraði Eva.
“Hún byrjaði!” sagði Adam.
“Nöö-hau”
“Júúhú”
“Gerðir það víst!”
“Gerði það ekki!”
“VÍÍÍÍÍÍSSSST!!!!”
Þegar Guð var alveg búinn að fá nóg
af þessum tveim villingum ákvað
hann að refsa þeim með því að láta
þau sjálf eignast sín eigin börn.
Og þannig hefur þetta gengið svo þú
getur huggað þig við það að
Guð gat ekki alið sín börn hvers
vegna heldur þú að það sé eitthvað
auðvelt fyrir ÞIG?