Væri ekki meiriháttar að vera lagður út í vagn, dúðuð i galla og breitt yfir mann sæng stöku sinnum. Oh ég er viss um að það er æðislegt. Ég var að spá í að láta smíða handa mér svona pæjuvagn. Hvernig haldiði að fólk mundi bregðast við því sem sæji hann úti í garði hjá mér? Risavaxinn Gulllitaður Silverkross með mjúku áklæði - alveg spes til að geta fengið sér bautihænublund. Og þá mundi ég vilja hafa svona babytalk út í vagni nema ég mundi snúa því öfugt þannig að hann sem væri inni mundi geta verið að lesa fyrir mig og þannig……
Er kansi til einhver leiga á svona fullorðins vögnum?

Þetta er ekki að tengjast kynlífi neitt en sko þetta er munaður og þráhyggja eftir einhverju seðjandi ósnertanlegu og einhverju sem er ekki til. Ekki nema þá kanski ef að þetta væri þá orðinn það stór vagn ……nei betra að fara þangað bara að lúra eftir kynlífið í kanínuundirfötum……………..