Okey ég verð að segja frá þessu og fá smá álit ! Þetta gerðist þegar ég var 5-6 ára og ég man ennþá eftir þessu .. Ok !!!

Þegar ég var já 5-6 ára þá átti ég heima í blokk, niðurí kjallaranum var þvottahús og svona hjólageymsla. Ég lék mér oft þar með vinkonu minni ( köllum hana X )við vorum oft bara með dúkkur og svoleiðis dót. Einn daginn kemur vinur bróður míns ( hann var jafngamall bróður mínum, semsagt 16 ára ) Já hann kemur niður til okkar og er eitthvað bara þarna og byrjar að leika við okkur og það var rosalega gaman. Síðan næsta dag þá kemur hann aftur og sér að við erum ennþá þarna að leika okkur eða ég man ekki alveg hvað við vorum að gera ég og X þegar hann kom niður. En allaveganna hann spyr okkur hvort við værum til í að koma í smá leik, og ég og X vorum alveg til í það ( við vorum báðar 5-6 ára ) og jájá.. hann segir okkur að leggjast á gólfið og sest síðan á milli okkar og segir okkur að hann ætli að gera svolítið. Fer síðan með hendina ofan í “rauðu buxurnar mínar” ( man alveg hvernig þær voru á litin ) og inní nærbuxurnar mínar og segir að þetta geri allar litlar stelpur og að þetta sé allt í lagi. Síðan heldur hann áfram í smástund ég man ekkert hvernig mér líkaði þetta, síðan hættir hann og gerir þetta við X. Svo segir hann að við höfum verið góðar stelpur og að við værum ennþá betri ef við myndum ekki segja neinum og að þetta væri okkar leyndarmál.

Þessi svokallaði “vinur bróður míns” var oft heima hjá okkur og hann og bróðir minn voru oft að leika sér í tölvunni og eitthvað svoleiðis. Síðan sit ég þarna inni með bróður mínum og “vini hans” og þá kemur bróðir minn með uppástungu um að við förum í leik ( ég held að ég hafi eitthvað verið að suða í honum um að gera eitthvað skemmtilegt spila spil eða eitthvað svoleiðis ) leikurinn man ekki alveg hvað hann heitir en hann er svoleiðis að einn fer í burtu og svo eiga hinir sem eftir eru að skipta á eitthverju eins og sokkum, eyrnalokkum, bolum, inniskóm eða e-ð svoleiðis. Bróðir minn byrjar á því að fara úr herberginu og þá byrjar þessi “vinur bróður míns” að fara með hendina niður í nærbuxurnar og heldur um munninn á mér um leið og þegar hann er búinn að hamast nóg þarna “niðri” þá hættir hann og segir mér að ég ætti að fara í sokkinn hans og hann í sokkinn minn ( þar sem ég var með svolitið litlar fætur þá komst hann náttlega ekki í sokkinn ) en allaveganna….

Ég sagði aldrei neinum frá þessu ! Og ég og X héldum áfram að leika okkur niðurí hjólageymslu. Og svo kemur “hann” niður og lokar hurðinni á hjólageymslunni og segir okkur að leggjast á gólfið að hann ætli að “kenna okkur meira”. Jæja og við ( litlu heimskingjarnir ) ég og X leggjumst niður og hann byrjar á því sama og fyrr um daginn.. Síðan leggst hann ofaná X ( hann klæddi okkur ekki úr buxunum heldur renndi hann bara niður rennilásnum á sínum buxum.. ) og nuddaði sér þannig upp við hana. Síðan gerði hann þetta við mig og sagði mér að koma við “typpið” , ég man hvað þetta var óþægilegt því að gólfið sem ég lá á var hart og bakið mitt klesstist upp við það enda var hann farinn að meiða mig, orðinn alltof æstur og ég var eitthvað farin að kveina þegar hann tók svo um munninn á mér og sagði mér að vera góð og hætta þessum látum !! Síðan gerði hann þetta aftur við X en núna var hann orðinn æstur og farinn að meiða hana eins og hann meiddi mig… Svo endaði hann á því að knúsa mig og svo settist hann í “indiánastellingu” og setti mig í fangið á sér og setti svo hendina ofaní nærbuxurnar mínar og káfað á maganum á mér og “brjóstunum” ( sem voru engin þá )… svo man ég ekki meira !

En ég man að þetta var svona í þónokkuð langan tíma þangað til að ég flutti 6-7 ára gömul ! Held að þetta hafi staðið í um 4-5 mánuði !! Ég sá X aldrei aftur en hún átti heima í þessari blokk í um 5 ár í viðbót… Því er ég að setja þetta hérna inná ? Það er útaf því að ég græt mig stundum í svefn og mér finnst ég vera svo heimsk og ógeðsleg. Ég þori ekki að segja neinum frá og ef ég myndi segja frá þá myndi það ekki gera neitt gagn, svona brot fyrnast ( ég er nýorðin 15 ) svo fljótt en það eina sem ég vil sjá er þennan ógeðslega náunga borga fyrir það sem hann gerði ! En málið er að ég veit ekki hvort það sé hægt þar sem að ég veit ekki hvort X er viljug til að tala um þetta eða þá hvort.. æji þetta er svo mikið vesen ! Þessi “vinur” bróður míns er núna 23-24 ára gamall ! og hver veit nema að það hafi verið fleiri stelpur en bara ég og X ???