Ég vann með fötluðum börnum í dag og ég fylltist öll af ánægju og hamingju :) ég brosti mikið og hló. Ég hafði aldrei unnið með fötluðum börnum og reyndar hafði ég alltaf einhvern vegin verið smeik fyrr en í dag við sungum og dönsuðum og ég veit ekki hvað. En ég skemmti mér konunglega og það er svo gaman að sjá þessa krakka uppfull af hamingju þó þau eiga svo erfitt og svo eru þau svo góðhjörtuð ég veit ég hef aldrei pælt í þessu en einhvern vegin leið mér svo miklu betur þegar dagurinn var búinn. Þegar ég kvaddi strákinn sem ég var að sjá um í dag faðmaði hann mig :) þau vilja alltaf vera góð við annað fólk faðma og kyssa afhverju geta ekki öll börn verið svona :) einhvern veginn langaði mér bara deila með ykkur hvað mér finnst fötluð börn vera yndisleg eftir þennan skemmtilega dag sem ég átti…hvað finnst ykkur annars..