Í dag ákvað ég að opna mig og segja frá svolitlu sem hrjáir mig. En ég hef aldrei nefnt þetta við nokkra manneskju. Ég vissi ekki alveg hvar þessi grein ætti að vera en ég ákvað að setja hana inn hér.

Ég veit ekki hvernig ég á að byrja en allavega, ég er sextán ára stelpa og þegar ég var lítil skyldu mamma mín og pabbi, ég bý hjá mömmu minni en þekki ekki pabba minn. Hjá mér og mömmu býr kærastinn hennar mömmu sem ég hata. Hann var reyndar voða góður fyrst. En þegar ég var átta ára sagðist hann ætla að gera svolítið sem allir pabbar mundu gera og mömmur mættu alls ekki vita því þá yrðu þær bara reiðar og mundu kanski fara. Hann klæddi mig úr öllum fötunum og byrjaði að strjúka mér en svo var ekkert meir. Ég mátti alls ekki segja neinum, þetta var leyndarmálið okkar, sagði hann. Fyrst fannst mér það reyndar soldið spennandi að hafa svona leyndarmál. En svo fór hann að vilja taka myndir. Hann tók myndir af mér í alskonar stellingum.
Svo þegar ég var orðin níu ára fékk hann það sem hann vildi, nauðgaði mér. Það var rosalega vont og ég man ég grét ofboðslega mikið. Þá byrjaði ég líka að pissa undir á nóttunni. Ég vafði alltaf lakinu utan um mig og mamma skyldi ekkert í þessu. Stjúpi lét eins og ekkert væri og sagði eitthvað eins og mamma og ég sagði ekkert heldur. Svo hefur hann haldið áfram að “naðuga” mér með árunum og enþá hefur mamma ekki komist að neinu og ég elska hana rosalega mikið og vil ekki gera henni lífið leitt með því að hún komist að því og taka þannig “stjúpann” frá henni…

Mér finnst ég ljót, útriðin stelpa sem engann langar til að vera með, ég á líka enga vini. En kanski útiloka ég mig frá þeim, ég veit ekki. En hvað á ég að gera?
Ég þori ekki að segja frá þessu. En ég vil ekki að þetta haldi áfram. Ég veit að hann fer í fangelsi ef að einhver kemst að þessu, ég las hérna á síðunni lög um misnotkun. En ég veit ekki hvað gera skal. Verið svo væn að hjálpa mér!