Jæja loxins læt ég eitthvað gott af mér leiða, ég og Stína fórum í dag niðrí Hjálparstarf ABC og “ættleiddum” okkur þarna sitthvorn strákinn frá Uganda.
Þeir eru báðir 5 ára. Minn heitir Henry og Stínu (creepz hér á huga) heitir Duncan.. Þetta eru 1400 krónur á mánuði sem hjálpa þeim alveg voðalega mikið… manni finst þetta kanski mikill peningur og tímir þessu kanski ekki alveg.. En svo þegar maður hugsar útí það þá er þetta minna heldur en að fara einu sinni að djamma… Þetta er í raun bara smá peningur, en er mikill peningur í þeirra augum.

Ég hvet ykkur öll til að láta gott af ykkur leiða og styrkja svona.
Manni líður líka svo vel á eftir

Kv. Hulda og Stína mömmu