Ég á von á mínu fyrsta barni núna í febrúar.. Hlakka mjög til ;) Og ég var að horfa á sjónvarpið í gær og rakst þar á þátt með Dr. Phil. Umræðuefnið voru flengingar. Ég var ekki flengd sem barn og ekki kærastinn minn heldur en við vorum samt mjööög ólík börn. Hann var mjög hlíðinn og góður og ég var alveg kolbrjáluð frekja ;)
Mig langaði bara að heyra ykkar álit á flengingum hvort sem að þið eruð foreldrar sem flengja eða flengja ekki og eins frá fólki sem var flengt og ekki flengt;)
Virkar það að flengja? Hvaða aðrar ögunaraðferðir eru og eruði með einhverjar sniðugar sem virka mjög vel??

Kv. Oreon…
It's cool to stay in school