Fékk þetta í pósti í dag og fannst þetta pínu sætt :)

Bara í dag….

-ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast og hlæja þegar mig langar frekar að gráta…
-ætla ég að leyfa mér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag…
-ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í,
brosa og hrósa þér fyrir “fullkomna” litasamsetningu…
-ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll…
-ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt…
-ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur…
-ætla ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann…
-ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór…
-ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd…
-ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til…

Bara Í Kvöld….

-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig…
-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu…
-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum…
-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum…
-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig.

Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín vegna veikinda eða slysa og mæðra sem dvelja á sjúkrahúsum með börnum sínum og berjast fyrir lífi þeirra. Ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt…
…nema annan dag með þér…
Kv. EstHer