Ok þetta passar kanski ekki mikið inn hér í börn… en jú samt.. þetta skeði þegar ég var “barn”

Sko þannig er að pabbi hafði alltaf bannað okkur sistkyninum að halda á svona blysum einhvernvegin.. og svo eitt skifti vorum við að skjóta upp svona.. og ég var búnað sjá fullt af krökkum halda á svona og mig langaði að prufa það! svo ég suðaði í pabba og hann stóð fast á sínu og sagði alltaf nei! svo bara æj ákvað hann að leyfa mér það.. bara passa mig að halda því langt frá mér og miða ekki á neinn! ég auðvitað voða spennt auðvitað og pabbi varað fara að kveikja í.. en eitthvað fór inní hausinn á mér þá og ég sagði nei.. og vildi allt í einu að við létum blysið bara standa á jörðini eins og alltaf! og alltí læji með það.. svo kveikti pabba í blysinu.. það kom einn svona kúla úr því og svo SPRAKK ÞAÐ!! ég hefði svo pottþétt brunnið ansi ílla eða jafnvel getað mist eitthvað af hendinni þetta var svo öflugt!!
Og ég sver það pabbi fékk tár í augun, stökk til mín og faðmaði mig! sagði að við fengjum sko ekki að halda á svona blysi! og við erum því sammála!

Þannig að sama hvað börnin ykkar suða með svona.. EKKI láta það eftir þeim!!


en þótt mar verði oft heppin með svona lagað þá er það bara ekki nóg!
einu sinni flaug bilaður flugveldur inná bróðir minn.. pabbi náði að vera snöggur og hendast inná krakkan og fleygja flugveldanum út! sem betur fer sprakk hann ekki og bróðir minn fékk bara smá brunasár inná sig.. sem er lítið meðað við það sem hefði gerst!