úff…Litla yndislega snúllan mín greindist með Heilahimnubólgu í gær :(Mér hefur aldrei liðið jafn illa á ævinni..Er alveg að springa:(
Að horfa á barnið sitt svona lasið er eitthvað sem ég vona að sem fæstir þurfa að ganga í gegnum!!
En hún er líka alveg rosalega dugleg og ég ætla að segja henni það þangað til að hún verður 90 ára :)

Það er að ganga faraldur með þessari Heilahimnubólgu,læknirinn sagði mér að það eru að minnsta kosti 2 börn á hverri vakt sem greinast með þetta.Og ég er alveg rosalega ánægð að ég hafi fattað það að fara með hana til læknis svona snemma eins og ég gerði.
Þannig að þið skuluð öll fylgjast VEL með börnunum ykkar…Mín var bara að kvarta um hausverk og var með 38 stiga hita ekkert annað,var ekki hnakkastíf eða ljósfælin þegar ég fór með hana en svo allt í einu sló henni svona rosalega niður og hún varð alveg fárveik :(Það þurfti að mænustinga hana og það var eitt það erfiðasta sem við báðar höfum þurft að ganga í gegnum..En hún er algjör hetja!! :)

Hún er öll að braggast,þarf að vera inni á spítala fram að helgi og þá vonandi verður henni batnað :)
ég varð að deila þessu með ykkur :(Passið krílin ykkar vel og farið með þau til læknis ef þau hafa einhver einkenni sama hversu væg þau eru :)

Bæó *snökt*
Stelpan