Erum að safna áheitum fyrir ferð til Rvíkur (þar á ég heima) frá Akureyri þar sem ég er í Myndlistaskólanum á Akureyri. Við söfnum áheitum hjá fyrirtækjum sem styrkja okkur til ferðarinnar og í staðinn eyðum við heilum sólarhring í að mála og teikna viðstöðulaust…nú er klukkan hálfþrjú um nótt og ég er að SOFNA bókstaflega og má alls ekki sofna :/ er komin með illt í bakið við að standa svona lengi við trönurnar áiiii!!!!!!!!!! þarf að vera vakandi í einn og hálfan sólarhring því það styttist í að minn bekkur skili lokaverkefni á þriðjudaginn og ég verð að klára mín 11 málverk!!!!!!