Hitt Húsið ætlar að vera með jólamarkað í desember þar sem fólki á aldrinum 16-25 ára gefst færi á að selja handverk sitt. Það getur verið hvað sem er, hvort sem er tónlist sem það er að gera á einhverju formati, strigar t.d. málverk, graff verk o.sfrv., hönnun á fötum, skartgripum, spöngum, fylgihlutum o.fl. o.fl.

Sum sé ef þú ert að gera eitthvað skapandi og vilt koma því á framfæri og jafnvel fá smá pening fyrir verkin þín þá endilega sendu tölvupóst á hitthusid@hitthusid.is

Sú hugmynd kom upp að hafa líka flóamarkað svo þeir hérna sem hafa verið virkir að selja gömlu diskana sína, vera með distro og annað slíkt væru líka velkomnir. Þetta væru þá að öllum líkindum tveir dagar í desember, eigum eftir að negla endanlega niður dagsetningu. Sem fyrr, áhugasamir á aldrinum 16-25 (munum nú líklegast þó ekki segja nei við einhvern undir 30 ára nema aðsóknin/þáttakan verði brjáluð)

ég heyrði að það séu líkur á að þetta verði laugardaginn 20 desember, enn það er ekki staðfest.