Ég ætla að gera málverk um lífsgæðakapphlaup. Fólk keppist við að eiga flottasta bílinn, nýjasta símann, fallegustu/vönduðustu/dýrustu fötin, fullkomnustu börnin(vel upp alin þó lítill tími gefist til uppeldis), fegurð líkamans og margt margt fleira. En hvernig á ég að láta þetta koma út á málverki? Best kannski að gera seríu með litlum myndum um flottasta dótið?