Beðið eftir Harry Jæja kæru Harry Potter aðdáendur. Nú hefur skiladagur 5. bókarinnar enn dregist fjær. ég sé varla fram á að hún komi nema kannski næsta vor. Þá er spurningin, hvað á að gera þangað til? Hér kemur smá listi sem að ég setti saman bara svona til gamans.

-Fara á myndina Harry Potter and the Chamber of Secrets sem verður frumsýnd núna í Nóvember.

-Fara á myndina í fullum Hogwarts skrúða

-Leikur: Þú og vinur þinn farið í keppni þar sem hvor á að nefna 1 nafn úr sögunum til skiptis og sá tapar sem stendur á gati og getur ekkert sagt. Mjög skemmtilegt.

-Lesa HP bæði á íslensku og ensku. Nú ef að þið eruð búin með það þá getið þið byrjað á rússnesku útgáfunni og jafnvel þeirri finnsku.

-Semja laglínu við alla hattasöngvana, sem eru mismunandi í hverri bók.

-Gefa alla hattasöngvana út á geisladisk og fara svo í auglýsingaherferð, selja mikið og fá gullplötuna eða hvað þetta heitir.

-lesa bresku og amerísku útgáfuna saman, staf fyrir staf og finna og ´glósa allan mun.

-skrifa fan fiction sögur og senda inn á www.sugarquill.com

-senda daniel radcliffe e-mail. danny_radcliffe01@hotmail.com

-fara í keppni við vin þinn um að gera allt þetta.


Njótið vel og komið endilega með fleiri hugmydnir!

kær kveðja

Inga Potter, the lost syster of Harry