Blindur.


Á sínum tíma sagði spámaðurinn í jakkafötunum
að það yrði alveg öruggt að kossarnir yrðu jafn
sárir og stungurnar frá heilbrigðu augunum
sem vinna í gráa garðinum.
Ákveðið var af náttúrunni að kippa mér út
vegna eitrunar frá stáltrjánum.
Ég fékk slípun frá skúlptúrmeisturum grimma grjótnámsins.
Í grjótnáminu hafa grjótin hjörtu sem ganga
fyrir ódýru subbulegu blóði.
Nú átta árum síðar er slípuð mynd mín veðruð
Í mýrinni sem liggur að garðinum.