Sumir segja, að krossgötur sé þar t.d. á fjöllum eða hæðum, sem sér til fjögurra kirkna. Elsta trúin er sú, að menn skuli liggja úti jólanótt, því þá eru áraskipti, og enn í dag telja menn aldur sinn (þegar þessi þjóðsaga var skráð) eftir jólanóttum, og sá er t.d. kallaður 15 vetra, sem hefur lifað 15 jólanætur. Síðar færðu menn ársbyrjanina á nýársnótt.

Þegar menn sitja á krossgötum, þá koma álfar úr öllum áttum og þyrpast að manni og biðja hann að koma með sér; en maður má engu gegna; þá bera þeir að manni alls konar gersemar, gull og silfur, klæði, mat og drykk, en maður má ekkert þiggja. Þar koma álfakonur í líki móður og systur manns og biðja mann að koma, og allra bragða er leitað. En þegar dagur rennur, þá á maður að standa upp og segja: “Guði sé lof, nú er dagur um allt loft.” Þá hverfa allir álfar, en allur þessi álfaauður verður eftir og hann á þá maður.

En svari maður eða þiggi boð álfa, þá er maður heillaður og verður vitstola og aldrei síðan mönnum sinnandi. Því varð manni sem Fúsi hét og sat úti jólanótt og stóðst lengi, þangað til ein álfkona kom með stóra flotskildi og bauð honum að bíta í. Þá leit Fúsi við og sagði það, sem síðan er að orðtaki haft: “Sjaldan hef ég flotinu neitað”; - beit hann þá bita einn úr flotskildinum, og trylltist og varð vitstola.