Ágætu notendur


Mikið hefur borið á því að sumir notendur hafi sent tilgangslausa vitleysiskorka og þess háttar hér inn á áhugamálið. Jafnframt hafa margir svarað korkum á dónalegan hátt og með tilgangslausu rugli. Þetta er eitthvað sem við viljum ekki sjá hér og verður framvegis ekki liðið. Þeir sem hafa stundað þessa yðju eru hér með vinsamlegast beðnir um að hætta þessu athæfi sínu strax. Fleiri tilgangslausir korkar og svör af þessu tagi munu verða til þess að viðkomandi sendandi verður bannaður án frekari viðvaranna.

Við aðra segi ég endilega haldið áfram að senda inn efni til að gera þetta áhugamál virkt.