Ég verð bara að segja að ég skil ekki hvernig stig geta ollið svona miklum vandræðum og skapað rifrildi.

Fólk skrifandi stigahóra, stigahóra hvað eftir annað þegar einhver sendir inn margar greinar eða korka og jafnvel kannanir.

Á næstum því öllum greinum og korkum sem ég les er búið að commenta um eitthvað stigahóru kjaftæði, og af hverju má ekki safna inn stigum? ég er ekki að segja að einhverjir séu að banna það, en ef einhver sendir inn greinar þá fara margir og eiginlega flestir að rífa kjaft.

Leyfið fólki bara að safna stigum í friði ef það vill það og hættið með þetta stigahóru kjaftæði!