Nokkuð er um það að þátttakendur á bílaáhugamálinu séu duglegir að senda inn myndir og er það af hinu góða. Hinsvegar er áberandi að einstakir notendur sendi inn margar myndir af misjöfnum gæðum og oft af samskonar bílum. Því þarf það ekki að koma á óvart ef þið ágætu hugarar sendið inn margar myndir í einu að aðeins fáar komist í gegn. Ég tel það betra að stöðugt streymi sé af nýjum góðum myndum en að að öðru hverju birtist hellingur af þeim enda munu margar þá bara hverfa í flóðið!

Skýrar og góðar myndir eiga betri möguleika ásamt myndum sem eru að einhverju leiti sérstakar. Það skaðar líka ekki ef vandaður (ekki sama og langur!) texti birtist með.