Þennan var bróðir minn að kaupa. Það þarf að kaupa nú ljós og nýtt grill svo þarf að laga 2 beyglur en að öðru leiti er bíllinn mjög heilegur. Hann er með V6 vél sem er að skila 220 hestöflum og er hann með öllum pakkanum s.s. leðursæti, topplúga og fullt af tökkum.
Ný vél frá Dodge, eða nýleg. Þeir þurfa nú eitthvað að fara að slaka á því hún er kominn í 8,4l V10. Aflið var hækkað úr 510 (held ég) í 600 hp. En bara 8,4l er bilun, sérstaklega þegar bensínverðið er orðið svona. Það er samt eflaust mjög gaman að keyra þetta.
Jean Bugatti og Bugatti Royale Þessi bíll hafði 12.7L Straight 8 vél (eitthvað um 275-300 hestöfl), 3 gíra beinskiptingu, afturdrif og var 6,4 m á lengd og tæp 3,2 tonn… drifter? XD Þessi bíll er talinn einn mesti lúxusbíll sem hefur nokkurntíman verið smíðaður, en aðeins 6 voru framleiddir og bara 3 þeirra seldir, hinir 3 voru geymdir hjá fyrirtækinu. Hvernig fynnst ykkur svo þessi “smábíll”?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..