Cizeta Moroder V16T Cizeta Moroder V16T

Þessi bíll var samvinnuverkefni milli verkfræðingsins Claudio Zampolli og tónlistarmannsins Giorgio Moroder,
Og er nafn bílsins dregið af þeim. (C.Z. = Ci-Zeta) Margir sjá eflasut svip með honum og Lamborghini Diablo
og er það engin tilviljun þar sem þeir voru hannaðir af sama manninum, Marcello Gandini,
sem einnig hannaði Lamborghini Countach, Bugatti EB110 og marga fleiri spennandi bíla.
Aðeins 10 eintök voru framleidd af þessum einstaka bíl á árunum 1991-1995.
Þetta var einnig fyrsti bíllinn til að bjóða 16 sílindra vél (eftir WWII allavega) og var hann sá eini þar til að Bugatti Veyron kom.
Ástæðan fyrir “T” í nafninu er vegna þess að vélin og gírkassinn mynduðu T þar sem vélin var sett þversum í.

tölur:

6.0 V16 DOHC 64v
540hö @8000rpm
542.33nm @6000rpm
4.4sek 0-100km/h
329.8km/h hámarkshraði
Meso.