Mercedes Benz E50 AMG Þetta er E50 AMG árgerð ´96. Hann var fluttur inn sumarið 2005 og var þá ekinn 63 þúsund km. Nú er hann ekki á númerum, enda niðri í bílageymslu í hitanum.

Í dag stendur mælirinn í 73.5xx km.

Þessa mynd ásamt fleirum tók ég í gær, 4. Feb 2007, eftir að hafa tekið smá rúnt á bílnum innandyra, skolað af rykið og bónað.


Eðalbíll, algjör gullmoli í 100% standi. Svo til nýkominn úr yfirferð frá Ræsi.