Ford GT Laugardaginn 23. september fengu margir draum sinn uppfylltan þegar þeir fengu að sitja í ofursportbílnum Ford GT. Þetta voru þeir þátttakendur í happdrætti Brimborgar sömu höfðu dottið í lukkupottinn og verið dregnir út. Fyrsti bíltúrinn var farinn klukkan 9 að morgni laugardagsins og sá síðasti um klukkan 18:30. Allir þeir sem höfðu verið dregnir úr pottinum mættu, nema einn, og verður að segjast að sú mæting var framar öllum vonum. Þetta sýnir þó um leið hversu mikið fólk lagði upp úr því að fá bíltúr í einum þekktasta bíl sögunnar.

P.s. tekið að www.brimborg.is