Bilar Nýr Renault Clio Sport kemur á markað nú í janúar 2004 en byrjað er að taka við pöntunum hjá Renault í Frakklandi.

Bíllinn gengur undir nafninu Clio 182, þar sem aflið hefur verið aukið um 10hö auk þess sem hámrkstog kemur inn á lægri snúningi en í fyrirrennaranum. Ýmsu hefur verið breytt auk aflsins en þar má t.d. nefna nýtt tvöfalt afturpúst (eins og sjá má á myndinni), ný inrétting, valmöguleika á ennþá sportlegri fjöðrun en áður, ný og breiðari Michelin Pilot Exalto dekk, fleiri litir og nýjar álfelgur.

Nú verður boðið upp á meiri möguleika en áður við pöntun og því mun vera hægt að velja bíl eftir eigin höfði en ekki aðeins um tvær týpur eins og áður.
I WAS BORN FOR DYING!