Bilar Lítur út eins og Formúla 1-bíll frá 7. áratugnum…
Light Car Company Rocket var önnur snilldar hönnun frá Gordon Murray og kom á eftir McLaren F1. LCC Rocket átti að nálgast eins og mögulega var þá reynslu sem er að aka alvöru kappakstursbíl og má halda að ágætlega hafi tekist til. Afl kom frá 1000cc Yamaha mótorhjólavél. Frábær á Nürnburgring, vonlaus í innkaupaferðina í Hagkaup. En hverjum er ekki sama?