Þannig er mál með vexti að glænýr Apexi AFC Boost controller sem stóð til sýnis í skáp í Á.G.Mótorsport hvarf úr skápnum núna nýlega.
Boost controllerinn er viðkomandi algjörlega ónothæfur, því viðkomandi hefur aðeins tölvuna en vantar allan festingar og tengisett og hefur því ekkert við controllerinn að gera, því ekki er hægt að kaupa tengisettið neins staðar eitt og sér.
Því er hér með skorað á viðkomandi eða einhvern sem gæti vitað hvar controllerinn er niðurkominn að láta mig vita í emailið gtturbo@visir.is og mun ég þá nálgast controllerinn og koma honum til skila aftur í búðina.
Ef controllerinn skilar sér til mín munu engir eftirmálar verða af þessu.

Með samvinnukveðjum
Úlfa