Jæja drengir og stúlkur. Ég vil bara endilega kvetja ykkur til að taka þátt í auto X keppninni. Málið er að vera með, ég myndi pottþétt taka þátt ef að ég hefði aldur, á meira að segja bíl og allt….en bara pjakkur ennþá =)

En endilega takið þátt. Það verður engin góður á því að fresta þessu alltaf. 1500kr er ekki mikill peningur (mun minna en hraðasektin sem þið getið sloppið við ef að þið fáið smá útrás þarna) og þetta er ábyggilega alveg skuggalega gaman. Hver segir svo sem að þú eigir að vinna? Það kemur bara með æfingunni og hún hefst nú ekki með því að horfa á. Og ég efa stórlega að áhorfendur fari að hlæja, við fáu sem gera það hef ég bara eitt að segja, jaaa ekki þorðir þú að vera með ;)


Svo vil ég bara taka fram að ég er ekkert tengdur þeim sem að eru að halda þetta.<br><br>—————————-

The most precious thing we have is life. Yet it has absolutely no trade-in value.
—————————-