Ég var á bílaleigubíl um helgina og var að ferja hann til ísafjarðar fyrir bílaleiguna. Nú eins og venjulega þá er manni ekki eins ant um bílaleigubíla eins og sinn eigin bíl og þá slysast maður til að keyra hraðar:) En allavega, ferðin gekk vel að Búðardal, 1klst og 5mín. Á þoskafjarðarheiðinni var komið slabb á veginn og það var rosalega sleipt. Þegar ég var á leiðinni niður af heiðinni mætti ég bíl í einni beygjunni og þurfti að negla niður, en ABS-ið klikkaði eitthvað, það var sama hvað ég steig fast á bremsuna bíllinn hægði ekki einusinni á sér, það brakaði ekki í bremsunum eins og gerir venjulega og petalinn titrar líka en petalinn varð bara “stífur”, hann fór ekkert niður og bílinn bremsaði ekkert! Bíllinn sem ég var að mæta snarstoppaði og sá hvað var að gerast. En ég einhvernveginn náði að ´rífa í handbremsuna og henda bílnum á hliða og halda honum í þessu rosalega “slædi”. Ég þurfti að horfa út um hliðargluggann til að horfa á veginn!
Ég bara skil ekki hvernig ég náði beygjunni á þessum hraða. Ég sá fyrir mér að ég myndi hendast niður snarbratta hlíðina!
Eftir þetta hægði ég auðvitað á mér og en vissi að bremsurnar voru eitthvað skrýtnar.
Þegar ég var kominn inn á Skötufjörð í ísafjarðardjúpi lenti ég í bílalest vegna þess að þarna voru vegaframkvæmdir. Ég hafði náttúrulega enga þolimæði í að hanga þarna og tók framúr lestinni, ég var kominn á skrið aftur og hélt að ég vaæri kominn fram hjá skemmdunum í veginum. En þegar ég kom yfir blindæð þá var þar mikill kantur á veginum og frekar stórir steinar þar fyrir neðan. Ég þurfti aftur að negla á bremsuna en þá varð bremsan aftur alveg stíf, og sama hvað ég steig fast á hana það gerðist ekkert. Ég var á 60-70km/h þarna en það var nóg til þess að ég tók flugið þarna og lenti í grjótinu með látum, bíllinn rakst harkalega uppundir og stuðarinn eða svuntan undir honum að framan fór líka niður og henti stóru grjóti upp á húddið. Hlífðarfrindir undir bílnum rifnaði hálf af og helmingurinn af henni dingglaði laus undir. Eftir þetta var ég alveg hættur að þora keyra hann. Ég þurfti að keyra á 110-120 alveg frá Skötufirði til Ísafjarðar. En ég komst heim á bílnum á 4tímum.
Bíllinn er kominn á verkstæði og þeir voru að yfirfara bremsurnar og finna ekkert!
Gaurinn sem er með umboðið fyrir leiguna sagði að þetta hefði komið fyrir hjá öðrum manni, en þeir á verkstæðinu segja ekkert vera að bremsunum!!
Ég var að spá hvort einhver af ykkur hugurunum, þið sem eigið imprezur hafið lent í þessu??
Accent ‘95 - Micra 2,0GTi ’96