Ég var fyrir hálftíma fyrir utan ísbúðina í Álfheimum með pabba í æfingaakstri og er stopp á bílaplaninu þegar hálfvitar á Bens koma aftan að mér og stela skiltinu af bílnum. Þeir nottla gefa í burt en ég var búin að vera að fylgjast með hvað í andskotanum þeir væru að bakka þannig að ég næ númerinu hjá þeim. Byrjaði auðvitað á að kæra þetta til lögreglunnar en djöfull er þetta samt fúlt. Þessir sömu gaurar voru áður búnir sýna okkur hvað þeir væru góðir bílstjórar þegar þeir stóðu Bensann í beygjunni og þá var bílstjórinn með vinstri löppina út um gluggann. Hann hefði misst bílinn ef þetta hefði ekki verið Bens. Vona að löggan nái þessum hálfvitum fljótt og mér þætti gaman að sjá svipinn á þeim þá.