Sæl öll.

Ég óska aftur eftir tilboðum í kaggann. Ég er búin að auglýsa tvisvar í DV og hef fengið 8 tilboð, vandamálið er bara að ég held ég sé ekkert of pikkí heldur það að það er búið að bjóða mér eitthvað hrikalega ópraktískt (miklu ópraktískara en bimmann, þannig að þá vil ég frekar bara eiga hann áfram).
Ég er að leita að ódýrari bíl, jeppa eða hjóli upp í. Helst staðgreiðslu og þá fæst GÓÐUR afsláttur!
En eins og ég segi, ekki vera hrædd við að gera mér tilboð (PS, mig langar náttúrulega mest í Porsche eða Cosworth)…. gæti jafnvel freystast ;) en sparibaukar væru helst málið.

Ásett verð er rúm 1700 þúsund. Það er ekki hægt að fá svona bíl ódýrari en sem nemur 1350 þúsund frá þýskalandi og þá er óljóst með ástand.

Ég keypti bílinn í 112 þúsund kílómetrum, Sonur han Guðmundar í B&L seldi hann frá sér í 96 þúsund, hann er núna ekinn 137 þúsund. Þannig að ég á mestan aksturinn á þessum bíl hér heima og öll þjónusta eftir B&L fór fram í Tækniþjónustu bifreiða. hann var aðeins ekinn 16 þúsund kílómetra þessi tvö ár frá því B&L seldi hann og þangað til að ég keypti, og það bara yfir sumartímann. Síðasti vetur var fyrsti veturinn sem bíllinn var notaður eitthvað að ráði hér heima.

Annars vildi ég bara helst fá tilboð, ég er ekki eins og ég segi pikkí með bíla upp í en allt sem eyðir meira en 18 lítrum á 100 km er ekki í myndinni. Er að safna mér fyrir íbúð og keyri 2500 kílómetra á mánuði sirka og því munar um minna.

Bíllinn: E34 BMW M5 1990. 3,6 lítra sex strokka línu vél og fimm gíra Getrag gírkassi. Hröðun 5,9-6,5 sekúndur í hundrað kmh og hámarkshraði 250 (takmarkaður).

Bíllinn er kolbikasvartur, Shadowline og með svört nýru (semsagt EKKERT króm), svart buffala leður að innan og 17“ þriggja hluta upprunalegar BBS felgur með nýjum háhraða heilsársdekkjum frá Dunlop.

Útbúnaður er eftirfarandi (smá viðauki).
Rafmagn í öllu nema sætum, skriðstillir (Cruise Control), GSM bílasími, loftkæling með sjálfvirkri miðstöð, aksturstölva, útvarp og segulband (vandað Kenwood tæki) með tengi fyrir magasín og svo er BMW kraftmagnari. Af öðrum standard M5 búnaði má nefna 25% driflæsingar, flækjur og millikæli.

Bíllinn er ekki tjónabíll og eini E34 M5 bíllinn á landinu sem hefur verið í eigu B&L og var reyndar fluttur inn og þjónustaður af B&L fram að sirka 90 þúsund km. Hann er algjörlega upprunalegur og þess hefur verið gætt að halda honum þannig. Það er búið að taka mjög margt í gegn á honum síðastliðinn vetur og er hann í toppstandi þó enn sé smávægilegt eftir.

Það sem þarf að laga. Afturrúðuhitarinn virkar ekki, álfelgurnar þurfa að fara í glerblástur (kostar sirka 40 þúsund), gírhnúðurinn er nokkuð slitinn og það er ein ryðskemmd á afturhurð. Ekki er hægt að læsa bílnum með lykli á farþega hurð (eitthvað bilað). Annað ekki.

Að keyra bílinn er vægast sagt spennandi. Þetta er rúmgóður MJÖG öflugur fimm manna bíll. Hann er með 25% driflæsingar að aftan og því mjög duglegur í snjó (betri en bæði A-Benz og Fiat sem ég hef verið á líka) og hann er eyðslugrannur miðað við 1800 kílóa bíl. Eyðslan er á bilinu 15-17 lítrar innanbæjar og 11 lítrar í langkeyrslu (þetta er ekki sparkeyrsla).

Það hafa alla tíð verið góðir eigendur að þessum bíl sem voru meðvitaðir um hvernig ber að umgangast svona tæki. Vélinni er aldrei snúið fyrr en hún hefur náð vinnsluhita og þess er gætt að hún snúist á hámarkssnúning að minnsta kosti vikulega, hann er því ennþá MJÖG lipur.

Verðið á þessum bílum hér heima er á bilinu 1500-1800 þúsund (miðað við 3.6 lítra vélina)og það á bílum í mjög misjöfnu ástandi. Óska ég eftir tilboðum í bílinn. Góður staðgreiðslu afsláttur fæst, en einnig skoða ég öll skipti á ódýrari.

Til að setja þennan bíl í samhengi við eitthvað sem menn þekkja þá er hann t.d. talsvert öflugri en Porsche 911 (964) og sneggri en samt næstum helmingi ódýrari. Þessi bíll hefur reynst framúrskarandi í rekstri og er með áreiðanlegustu bílum í þessu ”kraftflokki" í dag.

Hér er svo stutt grein sem ég skrifaði um bílinn á huga.

http://www.hugi.is/bilar/greinar.php?grein_id=34344

Kveðja,
<img src="http://www.heimsnet.is/bm/bmw_hugi.jpg">

Bebecar