ih8 var með komment um CV8 brabus benz, ég rakst hinsvegar á í dag nýja útgáfu af SL Benzanum frá Brabus, sá er með AMG mótorinn tjúnaðann í 550 hestöfl og hámarkshraði 330 kmh. Hröðun í 100 kmh er 4.4…. þetta er nú orðin ljóta vitleysan… ég er ekki viss um að það sé til nýr Ferrari sem ráði við þessar tölur!

Menn þurfa að fara að skoða nýjar leiðir þegar Benz og BMW eru komnir með svona ógurlegt afl í sína bíla.

Ég vil að sjálfsögðu minna á að Benz notar “supercharger” til að ná þessu út úr sínum vélum meða BMW menn eru ennþá með “normally aspirated”