Nú er alltaf verið að sýna þennan þátt á Pop Tíví um ökuskóla BMW sem var hérna fyrr á þessu ári. Viðtölin við þá sem tóku þátt í þessu eru létt að fara í mínar fínustu. “Nánast allir svara: Vá maður! þetta var rosalega gaman!” eða gaurinn sem talar um “******* hálfvitana á Miklubrautinni”.

Ég er ekki að setja út á það að hér komi ökuskóli með góðum ökukennara og góðri kennslu en mér finnst þáttasjtórnunin í þessum þætti alveg ferleg og eins og ég segi er hún að fara í mínar fínustu. Betra hefði verið að fá Bigga Braga til að fjalla um þennan viðburð og taka fagmannlega á þessu, þ.e. vera með faglega umfjöllun um þrautirnar sem voru keyrðar etc. etc….

DON<br><br>———————————–
clean desk is a sign of a sick mind
———————————–